Alltaf tvær hliðar

Ekki átti ég von á þvi að ég myndi skrá mig á "bloggið", ekki að ég sé á móti þvi bara það að ég hef alltaf meira gaman að lesa fremur en að skrifa

En tökum þá á því máli sem ég hef verið að lesa um í dag, opinberu bréfi feministafélagsins.  Byrjum á einu.  Ég styð þessi samtök eða ætti ég að segja öll þau samtök sem starf í mætti réttlætis í einu eða örðu formi.  Jú takk, ég vil betra réttarkerfi, jú takk, ég vil vonda menn á bak við lás og slá.  Jú takk ég vil betri heim fyrir mín börn.

 En ég var einu sinni ungur strákur sem trúði á lífið og frelsið.  Auðvitað rataði ég í ógöngur.  Þannig var að ég hitti stelpu sem ágærði mig fyrir nauðgun.  Hún laug til um aldur en samt hef ég ekkert við hana að sakast, mamma hennar vildi miljónir.  Nú er ég ekkert að ýkja  Um síðir lauk þessu leiðindarmáli og ég var saklaus dæmdur.  Enda hafði ég ekkert slæmt á samviskunni. 

 Það sem ég held að sýki íslenskt samfélag er samkeppni kynjanna.  Getum við ekki bara með meiri samhug og þekkingu á hversu ólík við kynin eru unnið betur saman og reynt að lunda betur við hvort annað.  Ég held að megin hluti karlmanna hafi viðbjóð á nauðgunum, rétt eins og konur og við viljum þann sora burt.  En hvernig, er mér hulin ráðgáta.  Kannski fylgir þetta okkur alltaf.

Hitt er að hið opinbera bréf feministafélagsins var kannski ekki sterkarkasti leikurinn í stöðunni.  Það særir margan og minnir á sumt á auglýsingarherferð þar sem "pabbinn" hélt á  stelpu nærbuxum".  Man að það vakti umræðu um að hallað væri nokkuð á hinn almenna karlmann í landinu og það voru misborin skilaboð.   Sem sagt, skilaboðin voru ekki eins og til var stefnt.

Mér er sama hver eða hverjir starfa við þessa baráttu, bara ekki halla á þá sem eiga það ekki skilið.

Á meðan ég lifi mun ég reyna hvað eg get að ala upp mín börn í ást og umhyggju, já og verja þau fyrir þeirri vá sem stundum er þarna úti en ég mun líka standa vörð gagnvart þeim sem misnota réttarstöðu sína og ranglega ákæra menn fyrir verknað sem ekki var framinn.

 Þetta er alltaf hitamál, alltaf erfitt.  Allir virðast hafa á því skoðun, en eitt hjóta allir að vera sammála um, rétt skal vera rétt.

 

Elskum hvort annað og berum virðingu fyrir hvort öðru, við erum öll ólík.

 

Bestu kveðjur,

Þorsteinn Eggertsson

 


mbl.is „Ég vona að þér verði aldrei nauðgað“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Þorsteinn Freyr Eggertsson

Höfundur

Þorsteinn Freyr Eggertsson
Þorsteinn Freyr Eggertsson
Um mig ??? ÉG er bara á skjön við allt og hana nú !
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband